fbpx
Brasserie Askur

Upplýsingar um fyrirtækið

  • M&M veitingar ehf.
  • 580700 3220
  • 553 9700
  • askur@askur.is
  • Suðurlandsbraut 4a

Askur áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og eða Hreyfli og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Askur Brasserie ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Askur Brasserie og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Rafbækur og aðrar rafrænar vörur
Öll kaup á vörum sem eru afhentar rafrænt (með niðurhalshlekk) eru endanleg um leið og greitt hefur verið fyrir vöruna. Slíkar vörur fást ekki endurgreiddar nema ef um gallaða/skemmda vöru er að ræða.

Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð á Askur Brasserie ekki alltaf í vefverslun.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 21/1995, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað, Lög nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, Lög nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga, Reglur um verðupplýsingar í auglýsingum nr. 21/1995.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.