Brasserie Askur

Stofnað 1966

Við á Aski leggjum okkur fram við að hafa allt fyrsta flokks og höfum gæði, þjónustu og notalegt umhverfi að leiðarljósi. Askur hefur verið einn besti Grillstaðurinn i Reykjavik síðan 1966. Við á Aski höfum upp á að bjóða fjölbreyttan matseðil og ferskt salat daglega.

Velkomin á Ask

Allt frá byrjun hefur markmið Asks verið að nota aðeins fyrsta flokks hráefni ásamt því að vera fyrstur í Evrópu með fitumælingar í kjöti, einnig að bjóða uppá ýmiskonar nýjungar eins og t.d. að matreiða í opnu eldhúsi þannig að viðskiptavinurinn gæti séð hvað var verið að elda. Askur var fyrsti íslenski BBQ staðurinn og bauð upp á grillaða kjúklinga, glóðarsteikur, lambakótilettur, nautasteikur og kokteilsósuna frægu.