Um Askur
Veitingastaður starfræktur síðan 1966

Um Ask

Tímalaus klassíker með bragð af sögu

Veitingastaðurinn Askur við Suðurlandsbraut er sannkölluð stofnun í íslensku matargerðarlandslagi – einn þekktasti veitingastaður landsins, með rætur sem ná aftur til ársins 1966.

Í meira en hálfa öld hefur Askur tekið á móti gestum af öllum kynslóðum með hlýju og rausnarlegri veitingamenningu. Hvort sem um er að ræða fjölskyldukvöld, hópamáltíð eða huggulegt kvöldverðarborð – þá hentar Askur alltaf.

Sagan segir að hin sígilda kokteilsósa eigi upptök sín í eldhúsi Asks – en staðurinn er jafnframt landsþekktur fyrir sína margrómuðu bearnaise-sósu, sem hefur glatt bragðlaukana í áratugi.

  • Er fundur framundan,  brúðkaup, afmæli eða bara tækifæri að hitta vini og vandamenn með góðum mat? Láttu okkur sjá um veisluna  
  • Viltu fá einhvern til að sjá um grillveisluna? Við getum reddað þér!
  • Ertu að fara í veiði með vinunum eða í gönguferð á Esjuna? Við getum séð um nestið allt frá veislumat, smáréttum í nestið fyrir hópinn. 
  • Sendu okkur línu og við hjálpum þér við að gera daginn sem ánægjulegastan! 

 

Askur – þar sem hefðir, góð þjónusta og ómótstæðileg matargerð mætast.